12.7.2007 | 19:40
Fólk er fífl.. !#$#$!%&%//
Eins og margir sem mig þekkja vita þá er ég í verkefni gengur út á að kanna áhrif næringarefaauðgunar á læki (global warming dæmi). Verkefnið er styrkt af evrópusambandinu og höfum við haft styrk til að kaupa tækjabúnað og ýmisslegt sem tengist verkefninu.. peningarnir eru ekki að kaffæra mann í þessum bransa En svo ég komi mér að efninu.. þá fórum við Lísa og Helena í felt (dregið af enska orðinu field work) til þess að bæta næringu í tunnur sem eru hluti af búnaði sem við höfum við hvern læk (9 talsins) á rannsóknarsvæðinu. Búnaðurinn samanstendur af; 2 stórum síldartunnum, álkassa, sólarrafhlöðu, rafgeymi, sérsmíðaðri dælu og slöngum (á við um hvern læk þannig að þetta eru 9 samsetningar). Ooog svo ég komi mér aftur að aðalmálinu þá hafði eitthver brotið upp lása á 3 álkössum, stolið 2 rafgeymum úr kössunum og.... það besta var.. sett aðra gamla og ljóta rafgeyma í staðinn og það sem er enn betra... tengt dælurnar og rafgeymana saman og búnaðurinn látinn dæla.. frekar furðulegir þjófar þarna á ferð.. . að stela frá háskólanum langtímarafgeymum (gefa veikann straum) og setja bílarafgeyma í staðinn (sem gefa öflugann straum í start) og tengja allt draslið.. já furðulegt! Samkvæmt þeim sem hafa eitthvað vit á rafgeymum þá ættu þessir langtímarafgeymar ekki að eiga eftir að endast í bíl þar sem þeir eru ekki gerðir fyrir start en eru frekar til að hafa í sumarhúsum og eitthverju svoleiðis pjatti.. en það er vonandi að þeir skemmist fljótt hjá ljóta þjófnum En á morgun fer löggan með okkur upp á Hengil til að taka myndir og fá upplýsingar í skýrslu Eins og sumir vita þá höfum við verið iðnar við að fá einkennisklædda karlmenn á fjall með okkur þ.a.m björgunarsveitina í Hveragerði alltaf gott að vera í góðum félagsskap!
Rakel
Athugasemdir
Helló hon! gaman að geta heyrt í þér (þar sem okkur gengur ekkert að hittast...:) Það er greinilega ótrúlegur lýður til! skemmdavargar.... en allarvegna... ertu með mæpeis!? síja ;)
Ásta Jóna (IP-tala skráð) 14.7.2007 kl. 14:21
mæspeis.. hvað er nú það.. hef heyrt um þetta en veit ekkert hvernig það virkar.. þú verður bara að kenna mér allt um mæspeis þegar við förum í kaffi
Rakel Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 14.7.2007 kl. 23:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.