11.7.2007 | 21:05
Leti og hugmyndaleysi
Þessi dagur byrjaði frekar seint.. var andvaka í nótt.. arg! en það skal ekki koma fyrir aftur.. eða vonandi ekki í nótt! Ég hafði það af að redda mér nokkrum greinum fyrir greinina sem vonandi "fæðist" fyrir SIL en það er í vinnslu. Er bara strand á tölfræðigreiningu sem kallast því fagra nafni split-plot analysis of variance
en er líklegast búin að redda mér hjálp með hana !
Á morgun er felt, ætlum að fylla á tunnurnar á Henglinum þ.e. bæta næringu í og taka ph, hita og leiðni í öllum lækjum.. s.s. endalaus gleði!
Er að horfa núna á Litla Bretland.. skemmtilegur húmor þar á ferð, eins gott að skilja húmorinn áður en haldið er út
Athugasemdir
Blessuð skvís ;)
Hlakka til að fylgjast með þér frá Liverpool.
Kv
Halldóra
Halldóra Harðar (IP-tala skráð) 11.7.2007 kl. 21:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.